Utanhússklæðingar
Í grunnverðum okkar er miðað við lóðrétta timburklæðningu eða litað bárustál sem hægt er að klæða lóðrétt eða lárétt. Viðskiptavinir geta valið nánast hvaða utanhússklæðningu sem er á hús sín.
Um fyrirtækið
SG Hús hafa verið leiðandi fyrirtæki í byggingu timburhúsa frá árinu 1966 og þú finnur húsin okkar um allt land. Hjá fyrirtækinu starfa 50 starfsmenn á fjórum sviðum: sölusviði, hönnunarsviði, framleiðslusviði og véla- og tækjasviði.
Lögð er áhersla á smíði vandaðra timburhúsa sem eru hönnuð og byggð fyrir íslenskar aðstæður. Fjölbreytilegt veðurfar á Íslandi gerir kröfur um vönduð vinnubrögð, og reynsla starfsfólks okkar við hönnun og framleiðslu eykur öryggi og gæði húsanna.

Í grunnverðum okkar er miðað við lóðrétta timburklæðningu eða litað bárustál sem hægt er að klæða lóðrétt eða lárétt. Viðskiptavinir geta valið nánast hvaða utanhússklæðningu sem er á hús sín.
SG Hús bjóða upp á fjölbreytt úrval teikninga og aðlaga húsin að óskum viðskiptavinarins með tilliti til staðsetningar, sólaráttar og útsýnis. Arkitekta- og verkfræðiteikningar, ásamt vatns- og hitalagnateikningum, eru innifaldar í verði.
Þakvirki með kraftsperrum (lárétt loft inni) eða límtrésborin þakvirki með uppteknum loftum. Val er um valmaþök eða stafnaþök. Kraftsperrur með t.d. 25° halla utanhúss en 15° innanhúss nýta hagkvæmni sperrunar og gefa aukna lofthæð.
Öll SG Hús eru einangruð. Íbúðarhús: 150 mm í útveggjum og 200 mm í lofti. Sumarhús: 150 mm í útveggjum og 180–200 mm í þaki.
SG Hús eru leiðandi í framleiðslu á færanlegum kennslu- og leikskólastofum. KUBBAHÚS eru nánast að fullu byggð innandyra í verksmiðju okkar og raðað saman á byggingastað.
Húsið fokhelt á 5 dögum. Byggingarferlið getur, við bestu aðstæður og þegar vel gengur, tekið mjög skamman tíma.